|
Innrétting Bretabraggans
Vinna við að klæða innan Bretabraggann gengur vel og verkinu miðar vel áfram. Hér á myndinni er einn af hollvinum Flugsafnsins, Gestur Hjaltason, að pússa kanta á einni plötunni, sem síðan verður fest upp í loft braggans með listum og límd föst með kítti. Það er óhætt að segja að innviðir braggans taki miklum stakkaskiptum við þetta. Nú er staðan þannig að nær alveg hefur verið lokið við að klæða þakið, búið er að glerja glugga á vesturhlið braggans og verið er að vinna við að klæða norðurvegginn svo hægt sé að ljúka við þakklæðninguna. |
|
An Airplane That Flies like A Bird. Draumur mannsins hefur löngum verið að fljúga eins og fuglarnir. Ætli þetta sé ekki að koma hjá okkur? Skoðið hér fljúgandi gervifugl. |
|
Stofnun Hollvinafélags Flugsafns Íslands
Að kvöldi hins 29. september 2011 var stofnfundur Hollvinafélags Flugsafns Íslands haldinn í húsnæði safnsins á Akureyrarflugvelli. Markmið félagsins eru að styðja við starfsemi safnsins og efla tengsl þess við almenning. Á stofnfundinn mættu u. þ. b. 20 manns og síðan hafa nokkrir bæst í hópinn. Þar var einnig skipuð undirbúningsnefnd sem ýta á starfsemi félagsins úr vör.
Fyrsta verkefni hins nýstofnaða félags er að klæða innan Bretabragga, sem settur var upp í safninu, og stendur vinna við það yfir um þessar mundir. Þar verður í framtíðinni hægt að tylla sér niður og fá sér kaffisopa og e. t. v. vöfflubita með.
. |
 |
Ágúst Bjarni Magnússon er tíu ára gamall og hefur mikinn áhuga á söfnun muna og merkja sem tengjast flugi og flugsögu. Áhugann hefur hann frá afa sínum, Þorsteini Einarssyni, sem hefur ólæknandi söfnunaráráttu. Þeir vinirnir gáfu Flugsafninu þessi merki sem 'Agúst Bjarni er með á myndinni, en hann hefur safnað þeim. Merkin tengjast öll flugsveitum og flugstarfsemi sem fram fór á Keflavíkurflugvelli. Einnig lánaði Þorsteinn safninu búninga frá breska hernum og þýska flughernum sem notaðir voru í seinni heimsstyrjöldinni. Merkjunum og búningunum verður komið fyrir á viðeigandi stað í safninu.
|
|
 |
Þá er komið að því! WACO-inn var dreginn á verkstæði til að fá stjörnumótorinn í nefið. Vélin kom mótorlaus til landsins því hann var tekinn "upp" í Bandaríkjunum. Nú er hann kominn heim og Helgi Stefánsson flugvirki ætlar að koma honum á sinn stað á næstu dögum. Hver veit nema WACO-inn sjáist á lofti yfir Akureyri fljótlega. Það væri ekki amarlegt að sjá slíka vél fljúgandi, því hún er eins og fyrsta flugvélin sem Flugfélag Akureyrar,síðar Flugfélag íslands, keypti með góðri aðstoð Kaupfélags Eyfirðinga1937.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 3 |